Frúin skrifar þetta blogg 
Við hjónin erum ekki alveg að standa okkur í blogg heiminum þessa dagana
Við æltum að fara yfir nokkra hluti sem hafa gerst hjá okkur og öðrum í kringum okkur.
Það sem er nú nr 1 er að hún Erla okkar og Ástþór voru að eignast sitt fyrsta barn. Fengu þau gull fallegan dreng sem er búið að nefna Oliver Leó.
Mamma, amma, Baddý og Inga Lára komu til okkar. Voru þær hjá okkur frá fimmtudegi til Sunnudags. Auðvitað var byrjað beint á því þegar komið var til Horsens að ná í Hilmi Snær þar sem hann hafið ekki hugmynd um að þær væru að koma. Varð hann ekkert smá ánægður þegar hann sá Elsu ömmu en vissi samt ekki alveg hvort að hann væri að sjá rétt
Síðan var brunað með þær í Bilka og þar voru keyptir nokkrir hlutir meðal annars keypti Baddý sér lampa. Allir héltu að að það færi ekki mikið fyrir honum nei nei haldið ekki að mín hafi fengið stæðsta kassan sem var á lagerinum. Við hlógum okkar alveg mátlausar þegar við sáum hana koma út með kassann en hún komst með hann alla leið til Íslands. Þar sem henni fannst þessi lampi ekki nóg fyrir sig var farið aftur í Bilka og hún keypti sér líka minni týpuna 
Á föstudeginum skelltum við okkur svo til Arhus og þar var sko verslað á sig gat og þá sérstaklega í HM enda sannir íslendingar á ferð. Um kvöldið skelltum við okkur á Bones að borða og eftir matinn skelltum við okkur á skólabarinn. Ó mæ það var ekkert smá gaman að sjá hana elsku mömmu mína skemmta sér með unga liðinu en ég get nú ekki sagt að það hafi sést hún væri eldri en við hinn. Hún var aðal skvísan á svæðinu. Syngjandi með Olsen brother lagið fly on the wings of love dansandi fugladansinn og takandi bylgjur við borðið okkar.Systur hennar voru ekkert síðri í þessu, tóku nokkur skotin með okkur unga liðinu hahahahahah.
Á laugardeginum var brunað niður til þýskalands og þar var verslað og verslað.
Á sunnudeginum fóru þær svo til baka. Eftir að þær fóru, fórum við fjölskyldan í skírn hjá Hólmfríði og Dennis en strákurinn þeirra var skírður Lucas Nökkvi.
Annars er allt fínt að frétta af okkur nóg að gera í skólanum ég er á fullu að sækja um praktik hérna úti. Vona bara að ég fari að fá eitthvað sem fyrst svo maður viti ca hvað maður er að fara að gera á næsta ári fyrir utan það að við viljum halda áfram að búa í Danmerku eins og er.
Rúnar var að vinna í seinustu viku fyrir Óskar og Kötu þar sem þau drifu sig til Íslands að fá sér íslenskan mat, nammi og appelsín 
Hilmir Snær er að fá vini sinn heim með sér eftir leikskólan í dag og ætlar hann að vera hjá okkur í nótt.
Sylvía systir á svo afmæli á morgun verður 27 ára skvísan.
Hilsen knilsen
M22