Hlutirnir gerast á M22 !

Alltaf eitthvað að gerast á M22 !

09.08.2007 20:30:56 / m22

Loksins nýtt blogg!

Þetta gengur ekki lengur hjá okkur hérna á M22 þetta blogg leysi L Eins og flestir vita þá erum við fjölsyldan búin að vera á Íslandi í sumar. Við erum búin að búa í Rauðahúsinu eins og Hilmir Snær kallar það J Hann stækkar og stækkar.Við hjónin erum búin að vera að vinna bæði á fullu ég (Fanney) er búin að vera að vinna hjá Actavis og Rúnar er búinn að vera að vinna að Fossatúni við að byggja sumarbústaði. Hann hefur verið alveg ótrúlega heppinn með veður. Það hefur ekkert ringt á þá frá því þeir byrjuðu að vinna sem er bara snilld:D

 

Við fórum í gær í grill heim til Kollu og Óla. Þangað mætti allur saumklúbburinn ásamt mökum og börnum. Þar var ákveðið að þau myndu koma til Köben í febrúar sem er snilld.Við hjónin erum strax farin að hlakka til að fá þau út.

Það var grillaður þessi geðveiki matur að hætti Árna flugmanns ;) Óli smiður sá um að elda humarinn í forrétt;)

 

Ég (Fanney) kem til Horsens á miðvikudaginn með Hilmi Snæ en mamma mín ætlar að koma með okkur. Rúnar verður nefnilega aðeins lengur og hann ætlar að stefna að því að koma þann 24.ágúst sem ég (Fanney) vona að eigi eftir að ganga upp.

 

Ásta og ég (Fanney) erum búnar að panta okkur ferð til Noregs aðra helgina í september. Við ætlum að fara að heimsækja Arthur vin minn sem er ný fluttur til Noregs og ætlum við að vera frá föstudegi til sunnudags þ.e. stutt stop en þetta á eftir að verða geðveikt gamanJ

 

Ég (Fanney) má ekki gleyma að segja ykkur frá því að systir mín er flutt til DK með son sinn, fínt að fá eina systu út til að geta spjallað við og gert eitthvað með :haha:

 

Ætla ekki að hafa þetta lengra en vondandi eigum við hjónin eftir að taka okkur á að blogga,

 

Over

M22

 

P.s

Ásdís ég sá að þú ert búin að klukka mig!! fer í það sem allra fyrst að svara því klukki :lol:

 

Ásta skrifaði
Góða ferð heim dúlla :) Maður hálf öfundar þig nú að vera fara heim í dag :) ... Knús og kram, Ásta P.s. ég byrjaði með bloggið aftur !!
Krissa skrifaði
Æjjj elsku dúllan mín...sko (Fanney)...ég (Krissa) þótti ekkert smá gaman að hitta þig (Fanney) þegar þú (Fanney) varst á Íslandi ! :) Þ´þusund kossar og knús til þín (Fanney) frá mér (Krissu)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.