Það er aldeilis sem kuldinn hérna í DK er farinn að fara í taugarnar á okkur hjónum!! á morgnana er frostmark og stundum mínus gráður og vill maður helst ekki fara fram úr rúminu sökum kulda!! jú við erum farin að hita upp húsið hjá okkur en kuldinn er bara svona rosalegur hérna!! En við hjónin erum búin að vera mjög duglega að nýta okkur barnaleysið en jú eins og kannski flestir vita þá fór Hilmir Snær til Íslands þann 29.des og gistir hann hjá Elsu ömmu og Bibba afa!! Prófin eru framundan hjá okkur hjónum og margt að lesa og undirbúa fyrir þessi próf.
En við erum ekki alltaf að lesa eins og til dæmis um áramótin leyfum við að kíkja aðeins út og við kíktum í mat til Ástu og Bjögga og fengum við þessar líka flottu kalkúnabringur nammi namm ekkert smá góðar. Svo skeltum við okkur á brennuna jebb við hérna í Horsens vorum með áramótabrennu um áramótin
þar var mikið saman safn af fólki og gaman að hitta fólkið og spjalla saman og jú skjóta upp nokkrum rakettum í tilefni áramótana!! svo var skundað til baka í eftirrétt og jú Áramótaskaupið!! það var frekar skrýtið þetta skaup í ár!! Kannski þeir hafa tekið LOST þættina of alvarlega því þeir byrjuðu á LOST byrjun en svo þvaraði það bara út í tóma þvælu eins og jú LOST þættirnir eru orðnir frægir fyrir!! samt nokkrir góðir punktar í því eins og þessi með blogg menninguna á Íslandi!! bara fyndið!
Heyrðu jæja núna er minn frítími búinn og lærdómur bíður. Við látum heyra betur í okkur þegar próftörnin er búin og aðeins byrjað að hægjast um hérna hjá okkur!
Kveðja frá M22 genginu 